Monday, November 16, 2009

Nýlenduvörur


Mér finnst gaman að fara í matvöruverslanir í útlöndum, sem og apótek. Er áhugamaður um framandi vörur ef svo má að orði komast.
Í heimsókn minni hér fyrr á árinu bragðaði ég fyrst Guarana gosdrykkinn og kneifa nú af miklum móð þegar þorsti sækir að. Margir þekkja guarana líklega úr magic orkudrykknum, það er stór hluti af bragðmynd þess drykks. Guarana gos er hins vegar mun betra og í raun furða að þessu hafi ekki skolað uppá íslandsstrendur, coca-cola company framleiðir týpuna sem ég drekk oftast.

1 comment:

  1. Sæll meistari, það er frábært að þú leyfir okkur að fylgjast með hérna, þetta er greinilega hið mesta ævintýri.... Ég las í blöðunum um rafmagnsleysið og fór í framhaldi að skoða myndir af stíflunni, það leið næstum yfir mig.... þvílik stífla

    ReplyDelete